Undanfarin ár hef ég útbúið dagatal til að hengja í eldhúsinu heima, einfalt og aðgengilegt. Krökkunum finnst mjög gott að hafa yfirsýn og í lok árs er skemmtilegt að fara yfir árið og sjá hvað er búið að gera. Nema í fyrra reyndar, það er undantekning.

Hérna má finna dagatal fyrir 2021 sem þú getur prentað út í svarthvítu, smellt á það klemmu að eigin vali eða gatað og sett upp á vegg, eða í ramma og tússað ofan á með töflupenna ef þú vilt geta strokað út.
Það er hægt að setja hvað er í matinn hvern dag, með penna í öðrum lit til dæmis. Ef þú vilt fá útprentað eintak með klemmu, sent í pósti þá kostar það 1500kr og þá máttu endilega senda mér póst.

Sparnaðarráð: Það er mjög krúttlegt að prenta í 50% stærð þannig að 2 mánuðir passi á eitt blað, skera í sundur eða bara hafa tveggja mánaða yfirsýn. Fyrir þá sem eru með A3 prentara og eru stórhuga í verki þá er líka möguleiki að prenta hvern mánuð flennistóran.

(ps. Ég veit að vikan byrjar á sunnudegi en það er alveg fatalt að klippa helgina í sundur þannig að í þessum heimi byrjar vikan á mánudegi)