Teikna – Teiknistofa arkitekta

Merki fyrir Teikna, teiknistofu Arkitekta, áður Teiknistofu Arkitekta Gylfi Guðjónsson og félagar.

Merki Teikna – Teiknistofu Arkitekta samanstendur af myndtákni og letri.
Myndtáknið er hægt að túlka sem blýantsenda eða þak á byggingu, jafnvel fjall eða landslag, allt atriði sem eiga vel við starfsemi Teikna.
Táknið stendur upprétt, er symmetrískt og stendur á tveimur jafnsterkum fótum og býr þannig yfir miklum stöðugleika. Leturgerðin
heitir Muli light eftir Vernon Adams, er steinskriftarletur með sterk geometrísk einkenni sem fer vel með formfasta myndtákninu.

Lína í sömu þykkt og stærri stafirnir skilur að textana Teikna og Teiknistofa Arkitekta.

Viðskiptavinur
Teikna, teiknistofa arkitekta
Ártal
2022
Categories