Vefir
Vefhönnun og vefsíðugerð hefur þróast gríðarlegum hraða síðustu ár. Hjá Blek er yfir 20 ára reynsla af hönnun fyrir vefinn og það mikilvægasta hefur í raun lítið breyst; að notandinn finni svör við spurningum, fái eitthvað út úr því að skoða og upplifa vefinn.
Vefurinn þarf að vera vel skipulagður upplýsingalega séð og með framsetningu við hæfi. Ekki síður er mikilvægt að hann finnist í leitarvélum og þar eru ótal mörg atriði sem þarf að hafa í huga. En fyrst og fremst er hann andlit þitt út á við og verkfæri til að hafa áhrif.
Við notum WordPress og buildera sem gera það kleift að hafa vefinn nákvæmlega eins og þú vilt hafa hann og þjóna fjölbreyttu innihaldi. Það eru hagkvæmir en jafnframt gríðarlega öflugir vefir sem geta náð miklum árangri fyrir markaðsstarfið þitt en það þarf jafnframt að sinna honum rétt og vel.
Hér má sjá vefi sem við höfum gert.