ReykjavíkurAkademían

Reykjavíkur Akademían notar hástafinn A sem auðkenni, hliðarnar þess eru þó eru ólíkar sem sýnir fjölbreytta starf sem er unnið innan Akademíunnar og halla hvort að öðru sem táknar samstöðu, jafnvægi og styrk heildarinnar. Í forminu má jafnframt sjá lítið r og stórt A.

Merkið myndar heiti Akademíunnar í hring utan um hástafa A-ið en lokar forminu þó ekki alveg, sem sýnir að innan félagsins er pláss fyrir nýjar hugmyndir og dýnamíkin sem myndast í opnu hringforminu sýnir að félagið er lifandi og á hreyfingu.

Önnur útfærsla sama merkis er lárétt útgáfa þar sem hástafirnir stilla sér upp á faglegan hátt en í miðjunni stendur A-ið upp úr og brýtur upp prúðbúið stílformið.

Viðskiptavinur
ReykjavíkurAkademían
Ártal
2019
Categories