Leiðarvísir fyrir sveitarfélög um aðlögun að áhrifum loftslagsbreytinga

Aðlögun sveitarfélaga að áhrifum loftslagsbreytinga. Leiðarvísir um aðgerðir sveitarfélaga við afleiðingum loftslagsbreytinga er yfirgripsmikið rit sem sýnir leiðbeiningar, aðferðir og verkfæri til mótunar aðlögunaraðgerða þegar loftslagsbreytingar eru annars vegar, með það að markmiði að koma í veg fyrir eða milda alvarlegar afleiðingar þeirra.
 
Ég setti leiðarvísinn upp með það að markmiði að hann væri auðveldur og áhugaverður aflestrar. Í efnisyfirlitinu eru tenglar í kaflana og neðst á hverri síðu, í blaðsíðutalinu, er tengill aftur yfir í efnisyfirlitið. Einnig gerði ég nokkrar teikningar sem styðja við textann og sýna e.t.v. málin í skýrara ljósi.
 
Leiðarvísirinn var eingöngu gefinn út rafrænt á vef Byggðastofnunar og á vef Veðurstofunnar, gottvedur.is en á málþinginu var einblöðungum dreift sem sýna helstu upplýsingar um það sem finna má í ritinu og hvar hala má skjalinu niður.

Byggðastofnun

2026

byggdastofnun.is

Aðgerðin er á ábyrgð umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis og var unnin af Byggðastofnun, Skrifstofu aðlögunar- og loftslagsþjónustu hjá Veðurstofu Íslands og Skipulagsstofnun, ásamt fulltrúum viðkomandi ráðuneytis, á árunum 2022-2025.
 
Byggðastofnun, í samstarfi við Veðurstofu Íslands, Skipulagsstofnun og umhverfis-, orku og loftslagsráðuneytið boðaði til málþings í Hofi, Akureyri, þann 12. febrúar 2026, undir yfirskriftinni: Aðlögun sveitarfélaga að áhrifum loftslagsbreytinga – Frá áskorunum til aðgerða: leiðarvísir, verkfæri og reynsla sveitarfélaga, þar sem fyrsta útgáfa af leiðarvísinum var kynnt. Málþingið var vettvangur til umræðu um raunverulega þörf sveitarfélaga til aðlögunar að áhrifum loftslagsbreytinga, helstu áskoranir og tækifæri þeirra innan málaflokksins og hvernig best megi mæta þörfum sveitarfélaga á næstu árum.