Júbílantahátíð
Júbílantahátíð útskriftarnema Menntaskólans á Akureyri er haldin 16. júní ár hvert en þar koma afmælisárgangar úr skólanum saman, frá 1 árs stúdentum og upp í 70 ára stúdenta, og eiga gott kvöld. Dagný var í skipulagsnefnd 25 ára stúdenta árið 2023 og útbjó þá myndrænt efni fyrir hátíðina sem var notað í auglýsingum, sölu og á hátíðinni sjálfri í prentefni og á skjám. Þessi vinna hefur síðan þá undið aðeins upp á sig og sama þema haldið áfram næstu ár á eftir.
Það er mikil áskorun að ná að höfða til svona fjölbreytts og breiðs aldurshóps en það sem sameinar þennan hóp sannarlega er söngurinn. Í skólanum er rík hefð fyrir söngsal og þó svo það séu tískusveiflur í lagavali þá hafa mörg lög náð að brúa kynslóðabil. Grafíkin fyrir hátíðina sýnir því smá útúrsnúning á lögunum sem hafa verið sungin í gegnum árin.
Júbílantar frá Menntaskólanum á Akureyri
2023-2026
„Rúgbrauð með rjóma á“
„Steinar í berjamó“
„…Vökva lífsblómið af og til“
„Fley og fagrar árar“