
Afmælissýning FVSA
Félag verslunar og skrifstofufólks fagnaði 90 ára afmæli síðla árs 2020 þegar COVID faraldurinn stóð sem hæst. Við settum upp afmælissýningu á Glerártorgi um starfsemi félagsins síðustu 90 ár, þar sem hægt var að halda góðri fjarlægð. Sýningunni var skipt niður á tímabil í sögunni með viðeigandi útliti, bæði 60’s og 90’s og fengum auk þess lánaða muni frá Minjasafninu úr 90 ára verslunarsögu og gömul skrifstofutæki til að auka á dýptina í uppsetningunni.
Ljósmyndirnar tók Daníel Starrason.
Félag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni
2020





